Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 10. ágúst 2019 20:24
Brynjar Ingi Erluson
Rússland: Jón Guðni hafði betur gegn Viðari
Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikinn gegn Krasnodar
Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikinn gegn Krasnodar
Mynd: Eyþór Árnason
Krasnodar 1 - 0 Rubin Kazan
1-0 Ivan Ignatjev ('17 )
Rautt spjald: Younes Namli ('45, Krasnodar)

Krasnodar lagði Rubin Kazan að velli, 1-0, í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikinn fyrir Rubin Kazan sem tókst ekki að skora gegn Krasnodar.

Jón Guðni Fjóluson sat á meðan á varamannabekknum hjá Krasnodar en Ivan Ignatjev gerði eina mark leiksins á 17. mínútu.

Krasnodar spilaði mann færri í síðari hálfleik eftir að Younes Namli fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks. Það hafði þó ekki áhirf á úrslitin og lokatölur 1-0.

Krasnodar er í 2. sæti með 10 stig en Rubin í 8. sæti með 7 stig.
Athugasemdir
banner
banner