Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   fim 15. maí 2014 17:30
Arnar Daði Arnarsson
Atli Eðvalds: Skondið að okkur sé spáð upp
Atli Eðvaldsson.
Atli Eðvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Eðvaldsson, þjálfari Aftureldingar, var ágætlega sáttur með að mæta ÍR í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins.

Hann segir þó að Afturelding gæti ekki fengið erfiðari andstæðing úr 2. deildinni, en fagnar því að fá heimaleik.

Atli er ánægður með undanfarna viku, þar sem hans menn í Manchester City urðu Englandsmeistarar og Afturelding vann í deild og bikar.

,,Þetta er búið að vera mjög góð vika og ég vona að það verði bara fleiri vikur svona. Þetta er náttúrulega erfiðasti leikur á móti 2. deildarliði. ÍR-ingum er spáð sigri í 2. deildinni, þannig að þetta er erfiður mótherji, en við fengum heimaleik, sem er gott," sagði Atli við Fótbolta.net.

Hann er ánægður með byrjun tímabilsins hjá Aftureldingu.

,,Að mörgu leiti mjög gott. Margir þættir af því sem við höfum verið að fara í gegnum hafa spilast okkur í hag í þessum leikjum. Það er mikið verk eftir óunnið, en ef við höldum áfram að vinna í þessum þáttum verðum við sterkir í sumar."

,,Ef maður hugsar um það að það eru 9 úr byrjunarliðinu frá því í fyrra og 14 í heildina sem hafa farið, og samt er okkur spáð að fara upp, mér fannst það svolítið skondið. En við erum hvergi hræddir, þetta er mjög samheldinn hópur og stemningin er góð í Mosfellsbænum. Liðsandinn er frábær og þetta getur orðið mjög gott."

Slapp
banner
banner