Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Aston Villa á eftir ungum leikmanni Betis
Mynd: EPA
Aston Villa er í viðræðum við Real Betis um kaup á Jesús Rodriguez.

Rodriguez er 19 ára gamall spænskur vængmaður en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðalliðið á síðustu leiktíð.

Hann kom við sögu í 31 leik og skoraði þrjú mörk. Hann kom inn á snemma í seinni hálfleik í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar sem Betis tapaði gegn Chelsea.

Fabrizio Romano greinir frá því að Rodriguez sé undir smá sjá nokkurra liða en Aston Villa hóf viðræður við Betis í vikunni.
Athugasemdir
banner