Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
   fös 13. júní 2025 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Garnacho of dýr fyrir Leverkusen
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho, leikmaður Man Utd, er líklega á förum frá félaginu í sumar.

Það er mikill áhugi á honum en Man Utd hefur sett 70 milljóna punda verðmiða á argentínska vængmanninn

Sky í Þýskalandi segir að það sé of hár verðmiði fyrir Leverkusen og þá eru launakröfur hans einnig of háar. Þýska félagið mun einbeita sér að öðrum kostum.

Chelsea, Atletico Madrid, Napoli, og Aston Villa hafa einnig verið orðuð við þennan tvítuga Argentínumann.
Athugasemdir
banner
banner