Olivier Giroud, fyrrum framherji Chelsea, hefur mikla trú á því að Liam Delap, nýr framherji enska liðsins, muni standa sig vel.
Delap mun spila í treyju númer níu sem Giroud hefur gert með franska landsliðinu, AC Milan og nú LAFC í Bandaríkjunum.
Delap mun spila í treyju númer níu sem Giroud hefur gert með franska landsliðinu, AC Milan og nú LAFC í Bandaríkjunum.
Paolo Maldini spurði Giroud hvort hann væri viss um að hann vildi vera í treyju númer níu þegar hann skrifaði undir hjá MIlan.
„Þetta snýst ekki um númerið á bakinu. Ég vil níuna og ég sýndi honum að það væri engin bölvun á henni, ég gerði vel," sagði Giroud
„Það er mikill pressa á framherjanum en fyrir mér er það best. Delap er mjög hæfileikaríkur og ef hann er með gott hugarfar munu strákarnir hjálpa honum að aðlagast vel. Hann spjarar sig," sagði Giroud.
Giroud mætir gömlu félögum sínum á mánudagskvöldið þegar LAFC og Chelsea mætast á HM félagsliða.
Athugasemdir