Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   fös 13. júní 2025 21:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeildin: ÍR vann Breiðholtsslaginn - Öruggur sigur HK
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Gnarr var heiðursgestur hjá ÍR í kvöld
Jón Gnarr var heiðursgestur hjá ÍR í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þrír leikir fóru fram í áttundu umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Það var áhugaverður Breiðholts slagur á AutoCenter vellinum þar sem topplið ÍR fékk Leikni í heimsókn.

Leiknir hafði unnið fyrstu tvo leiki sína undir stjórn Ágústs Gylfasonar en ÍR var ósigrað eftir fyrstu sjö leiki sína.

ÍR komst yfir eftir stundafjórðung þegar Óðinn Bjarkason mætti á nærstöngina eftir hornspyrnu og stýrði boltanum í netið.

Axel Freyr Harðarson fékk tækifæri til að jafna metin en Vilhelm Þráinn Sigurjónsson varði frábærlega frá honum. Í upphafi seinni hálfleiks átti Róbert Quental fyrirgjöf og boltinn var nálægt því að fara beint í markið.

Vilhelm var frábær í markinu hjá ÍR en hann varði dauðafæri hjá Dag Inga Hammer þegar um tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

Óðinn var nálægt því að bæta við öðru marki undir lokin. Kári Steinn Hlífarsson var hársbreidd frá því að jafna metin á loka andartökunum en skot hans rétt yfir markið.

Fjölnir er enn án sigurs eftir tap gegn HK í Kórnum. Heimamenn náðu tveggja marka forystu eftir tuttugu mínútna leik en Brynjar Snær Pálsson kom liðinu yfir og Dagur Orri Garðarsson bætti öðru markinu við tveimur mínútum síðar.

Dagur fékk tækifæri til að bæta þriðja markinu við undir lok fyrri hálfleiksins en Snorri Þór varði vítaspyrnu frá honum. HK var áfram sterkari aðilinn í seinni hálfleik og Birnir Breki Burknason innsiglaði sigurinn með marki á lokamínútum leiksins.

Fylkir hefur verið í basli í upphafi móts og það hélt áfram í kvöld þegar liðið gerði jafntefli gegn Grindavík sem hefur nælt í sjö stig úr síðustu þremur leikjum.

Þóroddur Víkingsson kom Fylkismönnum yfir eftir tuttugu mínútna leik þegar hann skallaði boltann í netið. Theodór Ingi Óskarsson var nálægt því að bæta við öðru marki Fylkis snemma í seinni hálfleik en átti skot í slá. Grindavík jafnaði metin en það var Ármann Ingi Finnbogason sem gerði sér lítið fyrir og skoraði beint úr hornspyrnu.

Eyþór Aron Wöhler var líflegur í uppbótatíma og átti meðal annars skalla sem Grindvíkingar björguðu á línu. Sigurmarkið leit ekki dagsins ljós og jafntefli því niðurstaðan.

Fylkir 1 - 1 Grindavík
1-0 Þóroddur Víkingsson ('20 )
1-1 Ármann Ingi Finnbogason ('72 )
Lestu um leikinn

HK 3 - 0 Fjölnir
1-0 Brynjar Snær Pálsson ('18 )
2-0 Dagur Orri Garðarsson ('20 )
2-0 Dagur Orri Garðarsson ('43 , misnotað víti)
3-0 Birnir Breki Burknason ('89 )
Lestu um leikinn

ÍR 1 - 0 Leiknir R.
1-0 Óðinn Bjarkason ('16 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 8 5 3 0 12 - 4 +8 18
2.    HK 8 4 2 2 15 - 8 +7 14
3.    Njarðvík 7 3 4 0 17 - 7 +10 13
4.    Grindavík 7 3 2 2 20 - 15 +5 11
5.    Þór 7 3 2 2 17 - 14 +3 11
6.    Þróttur R. 7 3 2 2 13 - 11 +2 11
7.    Keflavík 6 3 1 2 14 - 8 +6 10
8.    Völsungur 7 3 0 4 10 - 16 -6 9
9.    Fylkir 8 1 4 3 9 - 12 -3 7
10.    Leiknir R. 8 2 1 5 9 - 21 -12 7
11.    Selfoss 7 2 0 5 6 - 15 -9 6
12.    Fjölnir 8 0 3 5 7 - 18 -11 3
Athugasemdir
banner
banner
banner