Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fylgir Ancelotti frekar en að taka við sem aðalþjálfari
Mynd: EPA
Þrátt fyrir mikinn áhuga frá félagsliðum í Evrópu hefur Francesco Mauri ákveðið að elta Ancelotti-feðgana. Hann var partur af starfsteymi Carlo Ancelotti hjá Real Madrid og eru ýmis félög sem hafa sett sig í samband við Mauri í tilraun til að ráða hann á síðustu vikum.

Mauri hefur hins vegar ákveðið að fara með Carlo og Davide Ancelotti til Brasilíu þar sem þeir stýra brasilíska landsliðinu. Markmiðið er að undirbúa liðið fyrir HM á næsta ári.

Mauri er 36 ára gamall og hefur fylgt Ancelotti í meira en áratug. Þeir byrjuðu að starfa saman hjá PSG og hafa síðan þá stoppað hjá Real Madrid, FC Bayern, Napoli og Everton.

Búist var við að Mauri myndi taka við sem aðalþjálfari hjá nýju félagi eða að hann myndi elta Davide Ancelotti til Rangers og vera hans hægri hönd þar, en í ljós kom að bæði Mauri og Davide kusu að fylgja Carlo Ancelotti.

Athugasemdir