Sænski framherjinn Viktor Gyökeres er líklega á leið til Arsenal eftir að hafa hafnað því að endursameinast Rúben Amorim hjá Manchester United.
Gyökeres segir að það sé draumur sinn að spila fyrir Arsenal og því eru vonir Rauðu djöflanna orðnar að engu. The Guardian greinir frá.
Gyökeres er 27 ára gamall og kom að 67 mörkum í 52 leikjum með Sporting á tímabilinu.
Framherjinn hefur þó aldrei sannað sig í topp 5 deildum Evrópu eftir að hafa leikið í Championship deildinni og portúgalska boltanum.
Arsenal er einnig að skoða Benjamin Sesko framherja RB Leipzig.
Athugasemdir