Allt bendir til þess að leikur Atletico Madrid og Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni fari fram í Bandaríkjunum þann 8. desember næstkomandi.
Forráðamenn La Liga vilja gera deildina vinsælli í Bandaríkjunum og á síðasta tímabili munaði litlu að leikur Barcelona og Girona yrði færður þangað.
Forráðamenn La Liga vilja gera deildina vinsælli í Bandaríkjunum og á síðasta tímabili munaði litlu að leikur Barcelona og Girona yrði færður þangað.
Forsetar Atletico Madrid og Villarreal eru tilbúnir að færa leikinn til Bandaríkjanna í desember en um er að ræða heimaleik Villarreal.
Ef af verður mun leikurinn fara fram á Hard Rock leikvanginum í Miami en hann þar er pláss fyrir 65 þúsund áhorfendur.
Athugasemdir