Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 15:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fengið mikla gagnrýni en vann tvö stig í gær - „Til­búinn að gleyma því"
Pálmi Rafn.
Pálmi Rafn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar jónsson.
Ingvar jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kom til Víkings frá Wolves fyrir tímabilið í fyrra.
Kom til Víkings frá Wolves fyrir tímabilið í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Jónsson, aðalmarkmaður Víkings, glímir við kálfameiðsli og gat því ekki spilað með Víkingum gegn Aftureldingu í gærkvöldi. Í markinu stóð Pálmi Rafn Arinbjörnsson og stóð sig vel.

„Ég veit ekki hvenær það er von á Ingvari aftur, held þetta sé ekki alvarlegt, en við eigum eftir að sjá til með það. Þessi kálfameiðsli geta oft verið leiðinleg. Pálmi átti hrikalega flottan leik í dag, gerði virkilega vel. Ég er mjög sáttur með innkomu hans. Það sýnir styrk þessa hóps, kemur bara maður í manns stað og Pálmi gerði það virkilega vel í dag," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Fótbolta.net eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 Afturelding

Sölvi ræddi um Pálma í viðtali við mbl.is eftir leikinn.

„Hann er með gæði og við sáum að hann er ör­ugg­ur í löpp­un­um og upp­spilið okk­ar var bara mjög flott í dag og það er hon­um að þakka líka. Hann er líka rosa­lega góður og fljót­ur að koma út úr mark­inu og loka mark­inu vel."

„Hann er bú­inn að lenda í miklu mót­læti, hann hef­ur fengið á sig mörk sem hafa kannski litið illa út og fengið að heyra það í sjón­varpinu hjá sér­fræðing­um og svona, en hann sýndi mik­inn styrk að mæta hérna til leiks með kass­ann úti til­bú­inn að gleyma því, horfa fram á veg­inn og gera vel.”


Umræða í Innkastinu
Undir lok leiks í gær hjálpaði Pálmi sínu liði að sigla sigrinum heim. Rætt var um hann í Innkastinu þar sem umferðin var gerði upp.

„Afturelding hefði vel getað jafnað leikinn í uppbótartíma, fengu svo sannarlega færi til þess, en Pálmi Rafn bjargaði þá í markinu," sagði Elvar Geir.

„Gengið með Pálma í markinu hefur bara verið lélegt, það voru gerðar fréttir um það í fyrra og meira að segja halda því sumir fram að Víkingur væri Íslandsmeistari ef Arnar (Gunnlaugsson) hefði ekki verið að flakka á milli markmanna í fyrra. Fyrir Pálma er rosalega sterkt að verja í lokin og tryggja þeim þrjú stig. Vonandi fyrir Víkinga fær hann smá sjálfstraust því Pálmi er ekki lélegur markmaður," sagði Valur Gunnarsson.

Næsti leikur Víkings er útileikur gegn ÍBV í deildinni og svo eftir tæpar tvær vikur, 10. júlí, fer fram fyrri leikur liðsins gegn FC Malisheva í 1. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.
Sölvi um Óskar Borgþórs: Bara "no comment"
Innkastið - Mótlæti og mætir ekki í viðtöl
Athugasemdir
banner
banner
banner