Kristófer Kató Friðriksson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Þór en hann gildir næstu þrjú árin.
Kató er aðeins 15 ára gamall en hann er gríðarlega efnilegur miðjumaður sem steig sín fyrstu skref með meistaraflokki Þórs í vetur og í vor. Þar vakti hann mikla athygli fyrir vasklega framgöngu í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins gegn KA.
Hann er fjölhæfur miðjumaður sem getur einnig spilað í öftustu varnarlínu. Hann á sex leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þrjá með U15 og þrjá með U16.
„Við óskum Kató til hamingju með fyrsta samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni," segir í tilkynningu frá Þór.
Kató er fæddur 2009 og er því á sextánda aldursári. Hann hefur komið við sögu í einum keppnisleik með Þór í sumar, þegar hann fékk að spila síðustu 20 mínúturnar í þægilegum sigri á Selfossi í Mjólkurbikarnum.
Athugasemdir