Gullbikarinn
Gullbikarinn í fótbolta, landsliðakeppni Norður- og Mið-Ameríku, er í fullum gangi en Bandaríkin lögðu Kosta Ríka eftir vítakeppni í nótt og komust áfram í undanúrslitin.
Markvörðurinn Matt Freese var hetja Bandaríkjanna. Freese spilar fyrir New York City en hann var ansi vel undirbúinn fyrir vítakeppnina því hann vann ítarlegt rannsóknarverkefni í Harvard-háskóla um vítaspyrnur.
Markvörðurinn Matt Freese var hetja Bandaríkjanna. Freese spilar fyrir New York City en hann var ansi vel undirbúinn fyrir vítakeppnina því hann vann ítarlegt rannsóknarverkefni í Harvard-háskóla um vítaspyrnur.
Í flugferðinni til Minneapolis, þar sem leikurinn fór fram, skoðaði hann verkefnið sitt vel og skoðaði hvernig Kosta Ríka væri líklegt til að nálgast mögulega vítakeppni.
Freese varði þrjár vítaspyrnur í vítakeppninni sem fór í sex umferðir. Staðan var 2-2 í leiknum eftir venjulegan leiktíma.
Mauricio Pochettino stýrir bandaríska landsliðinu sem mun mæta Gvatemala í undanúrslitum í vikunni. Mexíkó og Hondúras leika í hinum undanúrslitaleiknum.
8-liða úrslit Gullbikarsins:
Bandaríkin 2-2 Kosta Ríka (4-3 í vítakeppni)
0-1 Francisco Calvo (víti '12)
1-1 Diego Luna ('43)
2-1 Maximilian Arfstein ('47)
2-2 Alonso Martínez ('71)
Kanada 1-1 Gvatemala (5-6 í vítakeppni)
1-0 Jonathan David (víti '30)
Rautt spjald: Rafael Shaffelburg, Kanada ('45)
1-1 Rubio Rubín ('69)
Mexíkó 2-0 Sádi-Arabía
1-0 Alexis Vega ('49)
2-0 Sjálfsmark, Abdullah Madu ('81)
Panama 1-1 Hondúras (4-5 í vítakeppni)
1-0 Ismael Díaz (víti '45)
1-1 Choco Lozano ('82)
Matty “Ice” Freese ???? pic.twitter.com/Ri6RwsD55f
— Gold Cup (@GoldCup) June 30, 2025
Athugasemdir