Baldur Logi Guðlaugsson gæti yfirgefið Stjörnuna í glugganum samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Hann er 23 ára fjölhæfur leikmaður sem hefur mörg hlutverk hjá Stjörnunni, þ.a.m. á miðjunni og í bakverðinum.
Hann er 23 ára fjölhæfur leikmaður sem hefur mörg hlutverk hjá Stjörnunni, þ.a.m. á miðjunni og í bakverðinum.
Hann rennur út á samningi í nóvember og samkvæmt heimildum hafa önnur félög skoðað möguleikann á að fá hann í glugganum.
Baldur Logi kom í Stjörnuna frá uppeldisfélaginu FH fyrir tímabilið 2023. Hann þótti einn efnilegasti leikmaður landsins á sínum tíma, lék sinn fyrsta leik 2017 og á sínum tíma lék hann 17 unglingalandsleiki.
Hann hefur komið við sögu í níu af þrettán deildarleikjum og öllum þremur bikarleikjum liðsins, byrjað fjóra leiki á tímabilinu.
Athugasemdir