Félagaskipti enska varnarmannsins Steven Caulker í Stjörnuna hefðu sennilega aldrei átt sér stað ef það hefði ekki verið fyrir tengingu hans við umboðsmanninn Bjarka Má Ólafsson.
Þessi 33 ára gamli Englendingur samdi á dögunum við Stjörnuna eftir að hafa áður gert garðinn frægan í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham, QPR, Cardiff, Liverpool og fleiri liðum.
Varnarmaðurinn var spurður út í það hvernig það atvikaðist að hann hafi samið við Stjörnuna og benti hann þar á samband sitt við Seltirninginn Bjarka Má, sem hefur undanfarin ár starfað sem umboðsmaður hjá Stirr Associates.
Þeir kynntust fyrir nokkrum árum er Bjarki starfaði með Heimi Hallgrímssyni hjá Al Arabi í Katar, en Caulker var þá í viðræðum um að fara þangað. Þau félagaskipti duttu upp fyrir sig, en hann hélt samt áfram að vera í sambandi við Bjarka.
„Við töluðum saman fyrir mörgum árum síðan þegar hann var í Katar og þeir höfðu áhuga á að fá mig þangað. Við byggðum samband og þó skiptin hafi ekki gengið í gegn þá héldum við sambandi og ég var hrifinn af því hvað hann var hreinskilinn sem er oft erfitt að finna í myrkrum heimi fótboltans. Við urðum vinir og hann nefndi við mig um þetta fyrir um það bili ári síðan og kom mér í samband, en það var bara stutt samtal og varð ekkert úr því enda hafði ég þegar samið í Tyrklandi. En eins og ég segi þá hringdi síminn fyrir mánuði og þannig byrjaði þetta allt saman,“ sagði Caulker.
Eins og hann sagði varð ekkert úr því að hann samdi á Íslandi á síðasta ári, en að þetta hafi komið boltanum af stað.
„Nei ekki nálægt því bara stutt samtal en ég var bara að sá fræjum og það virðist hafa hvatt ykkur til að hafa samband í ár.“
Bjarki Már hefur verið að gera frábæra hluti á innlendri sem erlendri grundu. Hann var efnilegur leikmaður sem þurfti 19 ára gamall að leggja skóna á hilluna vegna hjartavandamála, en fann sig fljótlega sem þjálfari.
Hann þjálfaði yngri flokka Gróttu og var gerður að yfirþjálfara yngri flokka. Þar skapaði hann Gróttuleiðina ásamt Magnúsi Erni Helgasyni sem er stefna fyrir yngri flokka sem hjálpar meistaraflokknum til framtíðar. Einnig vann hann í meistaraflokksteymi Gróttu er liðið fór upp í næst efstu deild árið 2018.
Í desember sama ár hélt hann með Heimi Hallgríms til Katar að þjálfa Al-Arabi. Hann var aðstoðarmaður Heimis og leikgreinandi, en undanfarin ár hefur hann verið að ryðja sér rúms á umboðsmannamarkaðnum. Hann starfar í dag hjá umboðsskrifstofunni Stirr Associates sem er með leikmenn á borð við Bart Verbruggen, Lois Openda, Toby Alderweireld og fleiri leikmenn á sínum snærum.
Athugasemdir