Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Er Sigurður Gunnar 'næsti' Caulker? - „Vonandi get ég hjálpað honum“
Sigurður Gunnar Jónsson
Sigurður Gunnar Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Steven Caulker hefur unnið mikið með Sigurði síðan hann kom til Stjörnunnar
Steven Caulker hefur unnið mikið með Sigurði síðan hann kom til Stjörnunnar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steven Caulker, nýr leikmaður Stjörnunnar, fór um víðan völl í viðtali við Fótbolti.net á dögunum, en það gæti verið svo að hann hafi fundið 'næsta' Caulker í leikmannahópi félagsins.

Englendingurinn samdi við Stjörnuna á dögunum og hefur fengið hlýlegar móttökur og sérstaklega frá einum leikmanni sem ætlar að mergsjúga alla þá þekkingu sem hann getur frá þessum fyrrum leikmanni Liverpool og Tottenham.

Sá heitir Sigurður Gunnar Jónsson og spilar sem miðvörður, en Sigurður er tvítugur leikmaður sem á 18 leiki í efstu deild með Stjörnunni.

Hann hefur æft aukalega með Caulker síðan Englendingurinn kom til félagsins og fagnar hann því, og segist um leið vonast til að geta hjálpað honum að þróa feril sinn.

„Maður tekur aukalega á því á hverjum degi en það er ástæðan fyrir því að ég kom hingað, til þess að styðja unga leikmenn og hjálpa þeim á þeirra vegferð. Ég hef mikla ástríðu fyrir þjálfun, en þetta virkar í báðar áttir og vonandi get ég hjálpað honum og hann hjálpað mér að þróa minn feril,“ sagði Caulker við Fótbolta.net.

Caulker var þekktur fyrir að hafa eitt leynivopn í leik sínum, en hann átti það til að spila sem fremsti maður þegar lið hans þurftu mark og er það eitthvað sem hann er að reyna koma inn í leik Sigurðar eins og sást í lok leiks í 3-0 sigrinum á ÍA fyrir viku síðan.

„Það sem er mikilvægt fyrir leikmenn er að fá stundum að spila í andstæðri stöðu. Þannig ef þú ert framherji að fara mæta varnarmanni, hvað er það sem þér finnst erfitt við að mæta varnarmanni? Þetta er eitthvað sem ég hef notað á seinni árum ferilsins. Ef ég verð framherji hvað finnst mér erfitt við það sem varnarmenn gera? Við höfum aðeins verið að vinna með það og hann hefur þegar náð miklum framförum,“ sagði hann um Sigurð.
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Athugasemdir
banner