Brasilíska félagið Botafogo hefur rekið stjórann Renato Paiva eftir að liðið féll úr leik á HM félagsliða.
Botafogo mætti öðru brasilísku félagi í 16-liða úrslitum, Palmeiras, en tapaði 1-0 í framlengingu.
Botafogo mætti öðru brasilísku félagi í 16-liða úrslitum, Palmeiras, en tapaði 1-0 í framlengingu.
Paica var því látinn taka pokann sinn eftir að hafa verið í starfinu í fjóra mánuði.
Botafogo vann PSG í riðlakeppninni en stjórn félagsins var ekki ánægð með tapið gegn Palmeiras og ákvað að rífa í gikkinn.
Bandaríkjamaðurinn John Textor er eigandi Botafogo en hann á hlut í Crystal Palace og átti franska félagið Lyon en seldi það á dögunum.
Athugasemdir