Steven Caulker er nafn sem stuðningsmenn Liverpool munu lengi muna eftir þó það hafi kannski ekki beint verið fyrir framlag hans heldur meira hvernig hann var notaður og fer á lista yfir ein furðulegustu félagaskipti sem Jürgen Klopp gerði á sínum tíma hjá félaginu.
Varnarmaðurinn fékk það óvænta símtal að ganga í raðir Liverpool í byrjun árs 2016.
Skiptin komu flestum ef ekki öllum í opna skjöldu, en þau voru að einhverju leyti skiljanleg þar sem Liverpool var að ganga í gegnum mikla varnarmanna krísu á þessum tíma. Martin Skrtel, Kolo Toure, Mamadou Sakho og Dejan Lovren voru allir að glíma við meiðsli og kallaði Liverpool Portúgalann Tiago Illori meðal annars til baka úr láni til þess að bregðast við þessu veseni.
Caulker átti að létta aðeins undir og stökk á tækifærið enda hafði leikmaður að nafni Virgil van Dijk tekið sæti hans í byrjunarliði Southampton.
Englendingurinn spilaði með Liverpool í hálft ár en Klopp hafði allt önnur plön en að spila honum í miðverði. Hann kom við sögu í þremur deildarleikjum inn af bekknum og í öll skiptin settur fram.
Caulker talaði við Fótbolta.net um dvölina hjá Liverpool og áhrif Klopp á hann.
„Ótrúleg reynsla. Ég áttaði mig ekki á stærð félagsins fyrr en ég fór þangað, klæddi mig í treyjuna og spilaði á Anfield. Að vinna með Jürgen Klopp var ótrúleg reynsla og það er mikil ákefð í honum því hann krefst mikils af leikmönnum sínum og ég tek ég margt frá honum sem stjóra og hvernig ég vil vera.“
„Uppáhalds hlutinn minn við hann var hversu góð manneskja hann er og í landsleikjahléum fengum við að vera með fjölskyldum okkar í æfingabúðum á Tenerife. Við æfðum og gátum svo verið með fjölskyldu og vinum á eftirmiðdeginum.“
„Það var yndislegt og þessi hlið gerir umhverfið svo gott og eitthvað sem maður vill vinna með. Ég tók margt frá honum á þessum stutta tíma og mun nú bæta því við mínar aðferðir,“ sagði Caulker um Klopp og tíma sinn hjá Liverpool.
Athugasemdir