Nottingham Forest er að leita að nýjum leikmönnum til að styrkja leikmannahópinn fyrir næstu leiktíð.
Forest reyndi að kaupa tvo kantmenn úr röðum Juventus á dögunum, þá Samuel Mbangula og Timothy Weah, en hefur núna hætt við kaupin.
Juve var tilbúið til að samþykkja um 25 milljón evru tilboð fyrir leikmennina saman í pakka en Weah neitaði að fara í viðræður við Forest.
Þá reyndu Forest og Juve að semja um kaup á Mbangula en þær viðræður gengu ekki upp svo enska úrvalsdeildarfélagið er hætt við.
Forest er mögulega að missa mikilvæga leikmenn frá sér í sumar og vill Nuno Espirito Santo styrkja hópinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni og Sambandsdeildinni.
24.06.2025 07:00
Forest að fá tvo leikmenn frá Juventus
Athugasemdir