Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 18:25
Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið KR og FH: Óskar Hrafn gerir þrjár breytingar - Grétar Snær snýr aftur eftir leikbann
Guðmundur Andri Tryggvason byrjar hjá KR í kvöld
Guðmundur Andri Tryggvason byrjar hjá KR í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Orri Kristjánsson flautar til leiks á Avisvellinum í Laugardal klukkan 19:15 þegar KR fær FH í heimsókn í Bestu deild karla. 

KR fór í heimsókn á Hlíðarenda í síðustu umferð og tapaði liðið 6-1 gegn Val. FH fékk Vestra í heimsókn í Kaplakrika og vann FH 2-0 sigur. 

Lestu um leikinn: KR 3 -  2 FH

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR gerir þrjár breytingar á liði sínu frá tapinu á Hlíðarenda í síðustu umferð.  Guðmundur Andri Tryggvason, Ástbjörn Þórðarson og Aron Þórður Albertsson koma allir inn í lið KR í dag. Alexander Helgi Sigurðarson fær sér sæti á bekknum Atli Sigurjónsson og Finnur Tómas Pálmason eru utan hóps hjá KR í kvöld.

Heimir Guðjónsson þjálfari FH tvær breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Vestra. Grétar Snær Gunnarsson kemur aftur inn í lið FH eftir leikbann og Arngrímur Bjartur Guðmundsson kemur einnig inn í lið FH. Böðvar Böðvarsson og Tómas Orri Róbertsson eru báðir í leikbanni í kvöld
Byrjunarlið KR:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Júlíus Mar Júlíusson
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
10. Guðmundur Andri Tryggvason
11. Aron Sigurðarson (f)
16. Matthias Præst
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
28. Hjalti Sigurðsson
29. Aron Þórður Albertsson

Byrjunarlið FH:
13. Mathias Rosenörn (m)
2. Birkir Valur Jónsson
4. Ahmad Faqa
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
22. Ísak Óli Ólafsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
Athugasemdir
banner
banner