Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool vill 40 til 50 milljónir fyrir Elliott
Mynd: EPA
Þýska félagið RB Leipzig er meðal félaga sem hafa áhuga á Harvey Elliott miðjumanni Liverpool.

Elliott er lykilmaður í U21 landsliði Englands en er ekki með byrjunarliðssæti hjá Liverpool og vill því leita á önnur mið.

Elliott er 22 ára gamall og kom að 8 mörkum í 28 leikjum með Liverpool á nýliðnu tímabili. Það eru mikil vonbrigði fyrir Elliott sem kom við sögu í 99 leikjum á tveimur tímabilunum þar á undan, en leikmaðurinn hefur í heildina spilað 147 leiki hjá Liverpool.

Elliott var í byrjunarliðinu er England sigraði úrslitaleik EM U21 árs landsliða gegn Þýskalandi í gærkvöldi og er það í annað sinn sem Elliott vinnur keppnina með landsliðinu. Hann skoraði tvennu í undanúrslitaleiknum og gerði svo eitt mark í úrslitaleiknum til að hjálpa Englandi að vinna mótið. Hann skoraði því fimm mörk í sex leikjum á EM.

Leipzig er þó ekki eina áhugasama félagið, þar sem Brighton og West Ham vilja einnig kaupa leikmanninn.

Elliott er með tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool og er talið að Englandsmeistararnir vilji fá um 40 til 50 milljónir punda til að selja leikmanninn í sumar.
Athugasemdir
banner