Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   sun 29. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: ÍH vann toppslaginn
Kvenaboltinn
Mynd: Aðsend
Mynd: Mummi Lú
Það fóru fimm leikir fram í 2. deild kvenna í gær þar sem ÍH hafði betur í toppslagnum gegn Völsungi.

Liðin mættust á Húsavík og enduðu Hafnfirðingar á að sigra þægilega, með fimm mörkum gegn tveimur. ÍH leiddi allan leikinn og verðskuldaði sigurinn. Hafrún Birna Helgadóttir var atkvæðamest með tvennu.

ÍH er í öðru sæti eftir sigurinn, með fullt hús stiga eftir 7 umferðir. Liðið er þremur stigum á eftir toppliði Selfyssinga. Völsugur og ÍH eru jöfn á stigum en ÍH er með betri markatölu og leik til góða.

Álftanes, Fjölnir og Sindri unnu þá heimaleiki sína, þar sem Ásthildur Lilja Atladóttir setti þrennu fyrir Álftnesinga á meðan Ester Lilja Harðardóttir og Kristjana Rut Davíðsdóttir skoruðu sitthvora tvennuna fyrir Fjölni.

Völsungur 2 - 5 ÍH
0-1 Hildur Katrín Snorradóttir ('1 )
0-2 Hrönn Haraldsdóttir ('12 )
0-3 Hafrún Birna Helgadóttir ('31 )
1-3 Alba Closa Tarres ('45 , Mark úr víti)
1-4 Margrét Helga Ólafsdóttir ('62 )
2-4 Halla Bríet Kristjánsdóttir ('82 )
2-5 Hafrún Birna Helgadóttir ('84 )

KÞ 1 - 1 Dalvík/Reynir
0-1 Arna Kristinsdóttir ('9 )
1-1 Hekla Dögg Ingvarsdóttir ('86 )
Rautt spjald: Katia Marína Da Silva Gomes , Dalvík/Reynir ('67)

Álftanes 4 - 1 Einherji
1-0 Ásthildur Lilja Atladóttir ('7 )
2-0 Klara Kristín Kjartansdóttir ('18 )
2-1 Coni Adelina Ion ('27 )
3-1 Ásthildur Lilja Atladóttir ('65 )
4-1 Ásthildur Lilja Atladóttir ('80 )

Fjölnir 4 - 1 Vestri
1-0 Ester Lilja Harðardóttir ('21 )
2-0 Ester Lilja Harðardóttir ('31 )
2-1 Coral Fernandez Quinonero ('45 )
3-1 Kristjana Rut Davíðsdóttir ('89 )
4-1 Kristjana Rut Davíðsdóttir ('90 )

Sindri 3 - 1 ÍR
0-1 Ana Catarina Da Costa Bral ('22 )
1-1 Noelia Rodriguez Castrejon ('53 )
2-1 Carly Wetzel ('71 )
3-1 Sarai Vela Menchon ('86 )
2. deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Selfoss 8 8 0 0 39 - 5 +34 24
2.    ÍH 7 7 0 0 44 - 9 +35 21
3.    Völsungur 8 7 0 1 36 - 11 +25 21
4.    Fjölnir 7 4 2 1 16 - 11 +5 14
5.    Dalvík/Reynir 8 3 1 4 19 - 18 +1 10
6.    Sindri 8 2 1 5 13 - 20 -7 7
7.    Álftanes 7 2 0 5 13 - 19 -6 6
8.    Vestri 7 2 0 5 11 - 24 -13 6
9.    ÍR 7 1 2 4 10 - 18 -8 5
10.    KÞ 5 1 2 2 5 - 15 -10 5
11.    Einherji 7 1 2 4 10 - 22 -12 5
12.    Smári 7 0 0 7 1 - 45 -44 0
Athugasemdir
banner