Lionel Messi og félagar í Inter Miami eru úr leik á HM félagsliða eftir tap gegn PSG í 16-liða úrslitum í gær.
Messi og Luis Suarez höfðu ekki úr neinu að moða í fyrri hálfleik og ekki mikið meira í seinni hálfleik en PSG vann 4-0 þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
Messi og Luis Suarez höfðu ekki úr neinu að moða í fyrri hálfleik og ekki mikið meira í seinni hálfleik en PSG vann 4-0 þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
Margir gagnrýndu Messi eftir frammistöðu sína gegn sínum gömlu félögum en Zlatan Ibrahimovic, fyrrum leikmaður PSG og fyrrum samherji Messi hjá Barcelona, var ekki sáttur með aðra leikmenn Inter Miami.
„Ekki tala um tapið eins og það hafi verið honum að kenna. Messi tapaði ekki, Inter Miami gerði það. Hefur þú séð þetta lið? Messi er að spila með styttum, ekki liðsfélögum. Ef hann væri í alvöru liði, í París, í Manchester, í hvaða stórliði sem er, myndir þú sjá alvöru ljónið," sagði Zlatan.
Athugasemdir