Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 15:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Skin, skúrir, þrumur og eldingar
Icelandair
EM KVK 2025
Fjölmiðlamenn ræddu við valda leikmenn á hóteli landsliðsins í dag.
Fjölmiðlamenn ræddu við valda leikmenn á hóteli landsliðsins í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það má segja að veðrið hafi verið alls konar í Sviss í dag; eiginlega bara íslenskt veður. Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eru hér að taka þátt á EM en hótel þeirra er í Gunten, rétt hjá Thun.

Fjölmiðlar fengu að heimsækja hótelið í fyrsta sinn í dag og taka þar viðtöl við valda leikmenn.

Ekki var hægt að taka viðtölin í garðinum við hótelið þar sem veður leyfði það ekki.

Fjölmiðlamenn yfirgáfu Thun í sól og rúmlega 30 stiga hita en þegar komið var til Gunten var veðrið mikið breytt. Það var allt í einu komin grenjandi rigning og þrumuveður. Líklega í fyrsta sinn var manni smá kalt í þessari ferð.

Það er núna alvarleg viðvörun um þrumuveður í Thun. En á miðvikudag, þegar stelpurnar okkar spila fyrsta leik sinn á EM gegn Finnlandi, verður appelsínugul viðvörun vegna hita og er búist við um 32 stiga hita daginn sem leikurinn verður.

Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir
banner
banner