Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Ungur strákur fór hæstánægður frá æfingu Íslands
Icelandair
EM KVK 2025
Með treyjuna.
Með treyjuna.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það var margmenni á opinni æfingu Íslands í Sviss í dag. Það var mikið um unga krakka sem komu til að sjá landsliðskonur Íslands æfa fyrir Evrópumótið.

Einn þeirra, ungur strákur, mætti með íslensku landsliðstreyjuna og penna. Strákurinn er að svæðinu í kringum æfingasvæðið.

Beið hann svo eftir stelpunum okkar til að fá áritun á treyjuna.

Fékk hann fullt af áritunum og var hann auðvitað hæstánægður með það eins og má sjá á meðfylgjandi myndum.
Athugasemdir
banner
banner