Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 13:20
Brynjar Ingi Erluson
Arsenal nær samkomulagi við Mosquera
Mynd: EPA
Arsenal hefur náð samkomulagi við spænska miðvörðinn Cristhian Mosquera um kaup og kjör en þetta segir Fabrizio Romano á X í dag.

Enska félagið ætlar að bæta varnarmanni við hópinn í sumarglugganum og virðist Mosquera vera maðurinn sem er næstur inn hjá félaginu.

Mosquera er 21 árs gamall sem hefur spilað allan sinn feril hjá Valencia og er kominn með 90 leiki og eitt mark á fjórum tímabilum sínum með aðalliðinu.

Romano segir að samkomulag sé í höfn milli Arsenal og Mosquera og að nú sé enska félagið að undirbúa annað tilboð eftir að fyrsta tilboði þess upp á 14 milljónir evra var hafnað.

Arsenal er að vonast til þess að geta landað Mosquera fyrir um það bil 20 milljónir evra.

Enska félagið er að gera áhugaverð kaup á markaðnum í sumar, en danski reynsluboltinn Christian Norgaard er á leið til félagsins frá Brentford, markvörðuinn Kepa er að koma frá Chelsea og þá er spænski miðjumaðurinn Martin Zubimendi að ganga í raðir félagsins frá Real Sociedad.
Athugasemdir
banner
banner
banner