Vestri byrjaði tímabilið stórkostlega en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum eftir tap gegn ÍA í dag. Fótbolti.net ræddi við Morten Ohlsen Hansen, fyrirliða liðsins í dag, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Vestri 0 - 2 ÍA
„Það er erfitt að segja. Við gefum okkur þessa viku til að finna lausn og verkfæri til að mæta Val," sagði Morten.
Hann var eðlilega svekktur með mörkin sem liðið fékk á sig.
„Við vorum óheppnir, kannski ekki réttar ákvarðanir á réttum augnablikum og okkur var refsað," sagði Morten.
Morten gekk til liðs við Vestra árið 2023 frá Kórdrengjum og líður vel á Ísafirði.
„Ég elska þetta. Ég elska hópinn og það er góð samheldni," sagði Morten.
Athugasemdir