Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hafnar Chelsea og Napoli fyrir Bayern
Mynd: EPA
Þýski framherjinn Nick Woltemade hefur tjáð Chelsea og Napoli að hann ætli sér að ganga til liðs við Bayern í sumar.

Woltemade er leikmaður Stuttgart en búið var að ákveða að funda með Chelsea og Napoli. Umboðsmaður hans lét hins vegar félögin vita að Bayern er eina liðið sem hann hefur áhuga á.

Hann lé 33 leiki með Stuttgart á síðustu leiktíð og skoraði 17 mörk.

Hann var í þýska landsliðinu sem tapaði gegn Englandi í úrslitum á EM U21. Hann var markahæstur á mótinu með sex mörk. Hann skoraði í öllum leikjunum á mótinu nema í úrslitaleiknum.
Athugasemdir