Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Milan náði samkomulagi við Torino um kaupverð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
AC Milan er að ganga frá kaupum á miðjumanninum Samuele Ricci sem kemur úr röðum Torino, en enska stórveldið Manchester City hafði áhuga á þessum leikmanni eftir að Rodri meiddist á síðustu leiktíð.

Man City tókst þó ekki að kaupa Ricci í janúarglugganum en leikmaðurinn er spenntur fyrir því að skipta um félag og heldur í staðinn til Mílanó.

Ricci var búinn að gefa grænt ljós á samning svo Milan átti aðeins eftir að ná samkomulagi við Torino um kaupverð, sem tókst fljótt. Milan greiðir í heildina 25 milljónir evra til að kaupa Ricci.

Ricci er 23 ára gamall og fer í læknisskoðun hjá Milan eftir helgi.

Hann er fenginn til félagsins til að hjálpa við að fylla í skörðin sem hafa myndast á miðjunni. Milan er einnig að reyna að kaupa Ardon Jashari frá Club Brugge og þá virðist Luka Modric vera á leið til félagsins á frjálsri sölu eftir að hann lýkur keppni á HM félagsliða.

Lágt kaupverð fyrir Ricci kemur á óvart þar sem leikmaðurinn á þrjú ár eftir af samningi sínum við Torino og hefur verið í algjöru lykilhlutverki undanfarin ár.

Ricci leikur sem varnarsinnaður miðjumaður og er með tíu A-landsleiki að baki fyrir Ítalíu.
Athugasemdir