Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
Maggi Már: Mér fannst við vera betri
Óskar Hrafn: Vonaði að það væri undantekningin sem sannaði regluna
Sölvi um Óskar Borgþórs: Bara "no comment"
Nikolaj Hansen: Ég er framherji og vil skora mörk
Heimir Guðjóns: Eigum ekki að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum
Morten Ohlsen eftir tap Vestra: Okkur var refsað
Gísli Laxdal: Ég potaði honum inn hundrað prósent
Viktor varð ekki stressaður: Kennie stendur fyrir sínu
Lárus Orri: Áttum okkur á því að þetta er bara einn sigur
Láki: Þurfum að hafa meira fyrir því að skora mörk
Rúnar Kristins: Það bjargaði okkur alveg
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Frá Ólafsvík á EM - „Maður er í þeim forréttindahópi"
Draumurinn rættist núna eftir svekkjandi tíðindi 2022
Upplifir fyrsta stórmótið með Íslandi - „Eiginlega engin orð fyrir það"
Skelltu sér í sjóinn og fengu góðan mat - „Bara flottara í persónu"
Taka stolt á móti Íslandi - „Eitthvað sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni"
Bróðir Ragnars Braga sló heimsmet í dag - „Gæti ekki verið stoltari"
Fékk að heyra það úr stúkunni - „Eins og einhver hefði lekið þeim upplýsingum"
Alli Jói: Ætla ekki að henda neinum undir rútuna
   sun 29. júní 2025 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Taka stolt á móti Íslandi - „Eitthvað sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni"
Icelandair
EM KVK 2025
Urs Böhlen, forseti FC Allmendingen.
Urs Böhlen, forseti FC Allmendingen.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir utan æfingasvæðið.
Fyrir utan æfingasvæðið.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Æfingavöllurinn lítur mjög vel út.
Æfingavöllurinn lítur mjög vel út.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það var mikið af fólki komið saman þegar stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu mættu á sína fyrstu æfingu í Sviss í dag. Það er nefnilega mikið stolt sem fylgir því fyrir svissnesnka áhugamannafélagið FC Allmendingen að Ísland sé að æfa á svæðinu fyrir leiki sína á EM.

Fótbolti.net er á staðnum og ræddi við Urs Böhlen, forseta FC Allmendingen, áður en Ísland mætti á æfinguna í dag.

„Þetta er frábært fyrir okkur. Við erum lítið félag. Fyrir okkur er þetta magnaður atburður, eitthvað sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni og fyrir okkur er þetta bara frábært."

„Við vonum að Ísland verði heppið með okkur og þær muni ná miklum árangri í Sviss," sagði Böhlen við Fótbolta.net.

Völlurinn leit virkilega vel út í dag og það var mikill hiti á svæðinu, í kringum 30 gráðurnar.

„Síðustu tvær vikur hefur veðrið verið mjög gott. Ég held að það verði líka mjög heitt næstu daga, kannski of heitt. Við þurfum að bleyta völlinn."

Fólkið er mjög stolt
Hann segir að fólk innan félagsins sé mjög spennt að fá Ísland í heimsókn. Það var opin æfing í dag og það var mikið fjölmenni á hana.

„Fólkið er mjög stolt af því að bjóða Ísland velkomið á okkar völl. Þú sérð mikið af fólki hérna og mikið af krökkum, margir foreldrar líka. Þetta er fólk sem vill bjóða Ísland velkomið," segir Böhlen.

„Þetta er einstakt augnablik fyrir okkur og það hefur farið mikil vinna í þetta. Núna erum við mjög stolt að þetta sé að byrja."

Hvað geturðu sagt mér um þetta félag?

„Við erum mjög lítið félag, eitt minnsta félagið á þessu svæði. Allir leikmennirnir okkar eru áhugamenn. Við erum ekki með neina atvinnumenn," sagði Böhlen.

„Það er gott fyrir okkur að sjá núna hvernig atvinnumenn æfa. Við lærum líka mikið af því að undirbúa völlinn, það sem er í kringum hann og svo völlinn sjálfan."

Hann er spenntur fyrir mótinu og vonast auðvitað til að Ísland komist sem lengst. „Það er vonandi að Ísland komist áfram og Sviss fari með þeim. Það væri frábært," sagði forseti FC Allmendingen.

Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir
banner
banner