Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 22:23
Ívan Guðjón Baldursson
Nýr framherji í læknisskoðun hjá Inter
Mynd: EPA
Inter hefur lokið við framherjaleit sína. Ange-Yoan Bonny mun ganga til liðs við félagið á næstu dögum eftir að samkomulag náðist við Parma um kaupverð.

Inter borgar 26 milljónir evra til að kaupa Bonny, sem er 21 árs gamall og kom að 10 mörkum í 37 deildarleikjum með Parma á síðustu leiktíð.

Bonny á 6 mörk í 19 leikjum með yngri landsliðum Frakklands og tekur hann sæti Marko Arnautovic í leikmannahópi Inter.

Lautaro Martínez og Marcus Thuram eru byrjunarliðsmennirnir í sóknarlínu Inter en Mehdi Taremi og Francesco Pio Esposito eru einnig í hópnum. Það er því gífurlega mikil barátta um byrjunarliðssæti í fremstu víglínu.
Athugasemdir
banner