Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
Maggi Már: Mér fannst við vera betri
Óskar Hrafn: Vonaði að það væri undantekningin sem sannaði regluna
Sölvi um Óskar Borgþórs: Bara "no comment"
Nikolaj Hansen: Ég er framherji og vil skora mörk
Heimir Guðjóns: Eigum ekki að fá á okkur mörk úr föstum leikatriðum
Morten Ohlsen eftir tap Vestra: Okkur var refsað
Gísli Laxdal: Ég potaði honum inn hundrað prósent
Viktor varð ekki stressaður: Kennie stendur fyrir sínu
Lárus Orri: Áttum okkur á því að þetta er bara einn sigur
Láki: Þurfum að hafa meira fyrir því að skora mörk
Rúnar Kristins: Það bjargaði okkur alveg
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Frá Ólafsvík á EM - „Maður er í þeim forréttindahópi"
Draumurinn rættist núna eftir svekkjandi tíðindi 2022
Upplifir fyrsta stórmótið með Íslandi - „Eiginlega engin orð fyrir það"
Skelltu sér í sjóinn og fengu góðan mat - „Bara flottara í persónu"
Taka stolt á móti Íslandi - „Eitthvað sem gerist bara einu sinni á lífsleiðinni"
Bróðir Ragnars Braga sló heimsmet í dag - „Gæti ekki verið stoltari"
Fékk að heyra það úr stúkunni - „Eins og einhver hefði lekið þeim upplýsingum"
Alli Jói: Ætla ekki að henda neinum undir rútuna
   sun 29. júní 2025 22:42
Gunnar Bjartur Huginsson
Maggi Már: Mér fannst við vera betri
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld.
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með frammistöðu sinna manna, þrátt fyrir 2-1 tap gegn Víkingi á útivelli í kvöld. 

Ég er svekktur að tapa. Mér fannst við eiga stig skilið, jafnvel öll þrjú. Frammistaðan var frábær og mikið hrós á strákana. Þeir ná einhverju smá áhlaupi, þar sem þeir skora þetta sigurmark en mér fannst við eiginlega vera betri. Við erum að skapa fleiri færi. Ég er gríðarlega ánægður með strákana."


Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 Afturelding

Oliver Sigurjónsson, lykilmaður í liði Aftureldingar, fór meiddur af velli í leiknum í kvöld. Inn á kom Enes Þór Enesson Cogic og stóð hann sína plikt. Magnús Már virtist ekki hafa miklar áhyggjur af meiðslum hans. 

Þetta er bara smávægilegt högg og ég hugsa að hann verði með á móti Breiðabliki á fimmtudaginn. Enes kom inn fyrir hann og stóð sig frábærlega í leiknum. Uppalinn strákur hjá okkur."

Næsti leikur Aftureldingar er gegn Breiðabliki en bróðir Magnúsar, stendur einmitt vaktina í marki þeirra og heitir Anton Ari Einarsson. 

Það er bara gaman að mæta honum og gaman að fá Breiðablik í heimsókn. Ég held að það sé upphitun í Hlégarði og mikið húllumhæ fyrir fjölskylduna. Við þurfum enn þá meiri stuðning frá stúkunni en í dag. Ég vil sjá 10-20% af bæjarbúum mæta," sagði Magnús Már að lokum.

Viðtalið í heild sinni má nálgast í spilaranum að ofan.


Athugasemdir
banner