Hollenska félagið PSV Eindhoven hefur staðfest að Tyrell Malacia sé farinn aftur til Manchester United en félagið tók ákvörðun um að gera ekki skiptin varanleg.
Malacia, sem er 25 ára gamall bakvörður, kom til PSV á láni í byrjun ársins og hjálpaði liðinu að vinna hollensku deildina með ævintýralegum hætti.
Hollendingurinn spilaði aðeins 12 leiki í öllum keppnum með PSV og náði ekki alveg að festa sig í sessi í heimalandinu, en félagið fékk kauprétt á leikmanninum.
PSV gat gert skiptin varanleg fyrir 10 milljónir evra, en ákvað gegn því og hefur það nú staðfest að hann sé farinn aftur til United.
Man Utd ætlar sér að selja Malacia í sumarglugganum, en samkvæmt Athletic hafa engin tilboð borist í hann.
Einnig kom fram að hægri bakvörðurinn Rick Karsdorp muni ekki framlengja samning sinn við félagið og yfirgefur hann því félagið þegar samningur hans rennur út á morgun.
Bedankt en veel succes in de toekomst, Tyrell ???? pic.twitter.com/B7SUBx4zbY
— PSV (@PSV) June 29, 2025
Athugasemdir