Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 19:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Joao Pedro skrifar undir sjö ára samning - Verður með Chelsea á HM
Mynd: EPA
Chelsea hefur náð samkomulagi við Brighton um kaupverð á brasilíska sóknarmanninum Joao Pedro.

David Ornstein hjá The Athletic greinir frá því að Chelsea borgi rúmlega 50 milljónir punda og þá mun hann skrifa undir sjö ára samning við félagið.

Newcastle hafði einnig áhuga en Chelsea var eini möguleikinn í augum Joao Pedro.

Þegar hann hefur staðist læknisskoðun verður hann til taks á HM félagsliða en Chelsea er komið í 8-liða úrslit þar sem liðið mætir Palmeiras.

Chelsea hefur nælt í Liam Delap frá Ipswich í sumar og þá er Jamie Gittens á leiðinni frá Dortmund.
Athugasemdir