Óskar Borgþórsson er á leið til Víkings frá Sogndal í Noregi.
Óskar er 21 árs kantmaður og er uppalinn hjá Fylki en gekk til liðs við Sogndal árið 2023. Hann var á þeim tíma orðaður við Breiðablik og Víking.
Víkingur reyndi að fá hann í vetur en Sogndal hafnaði beiðni félagsins. Óskar var ekki í leikmannahópi norska liðsins gegn Lilleström í norsku B-deildinni í gær.

Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur í Stúkunni á Sýn Sport, er mikill Fylkismaður en hann sagði frá því í þætti gærdagsins að Óskar myndi skrifa undir samning við Víking fljótlega.
„Hann skrifar undir á morgun (í dag), eða á þriðjudaginn, það veit ég alveg hundrað prósent. Ég get staðfest það að það er þriggja og hálfs árs samningur, sagði Albert.
Óskar verður hins vegar ekki löglegur fyrr en 17. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.
Athugasemdir