Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HK Orkumótsmeistari í ár
Mynd: HK
Orkumótið í Vestmannaeyjum fór fram um helgina. Þar mætast drengir í 6. flokki en HK bar sigur úr býtum á mótinu eftir sigur á Þrótti í úrslitaleik.

Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem HK hafði betur og eru því Orkumótsmeistarar árið 2025.

Þjálfarar HK á mótinu voru þeir Bjarni Valur Valdimarsson, Arnar Gestsson, Axel Lúðvíksson og Andri Hjörvar Albertsson.

„Ljóst er að framtíðin í Kórnum er björt og verður spennandi að fylgjast með þessum efnilegu drengjum í framtíðinni!" Segir í tilkynningu félagsins.


Athugasemdir
banner