Hinn 41 árs gamli Darren Fletcher er í viðræðum um að taka við starfi sem aðalþjálfari U18 liðs Manchester United.
Fletcher er skoskur en ólst upp hjá Man Utd eftir að hafa flutt til Manchester aðeins ellefu ára gamall. Hann endaði á að leika 342 keppnisleiki fyrir aðalliðið.
Fletcher hefur verið mikilvægur hluti af stjórnenda- og þjálfarateymi Man Utd á undanförnum árum og greinir The Athletic frá því að næsta starf hans gæti verið við stjórnvölinn hjá U18 liðinu.
Fletcher hefur starfað sem tæknilegur ráðgjafi hjá félaginu en hann er partur af þjálfarateymi Rúben Amorim í dag. Stjórnendur félagsins telja hann vera bráðefnilegan þjálfara og vilja þess vegna að hann taki við unglingaliðinu.
Sky segir Fletcher einnig vera þeirrar skoðunar að það sé kominn tími fyrir sig til að hefja ferilinn sem aðalþjálfari.
Athugasemdir