Gyða Kristín Gunnarsdóttir mun ekki spila með Stjörnunni í sumar þar sem hún á von á barni.
Hún og Árni Elvar Árnason, unnusti hennar, greindu frá þessu á samfélagsmiðlum.
Hún og Árni Elvar Árnason, unnusti hennar, greindu frá þessu á samfélagsmiðlum.
„Við hlökkum til að hitta þig í september," skrifar Gyða Kristín á Instagram.
Gyða Kristín, sem er fædd árið 2001, hefur spilað stórt hlutverk með Stjörnunni undanfarin ár. Í fyrra spilaði hún 20 leiki í Bestu deildinni og skoraði fjögur mörk.
Athugasemdir



