Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 17:24
Elvar Geir Magnússon
Evrópudeildin: Robbie Keane magalenti í Braga
Ricardo Horta var í miklu stuði og skoraði tvö mörk.
Ricardo Horta var í miklu stuði og skoraði tvö mörk.
Mynd: EPA
Robbie Keane stjóri Ferencvaros og Carlos Vicens stjóri Braga.
Robbie Keane stjóri Ferencvaros og Carlos Vicens stjóri Braga.
Mynd: EPA
Braga 4 - 0 Ferencvaros (Samtals: 4-2)
1-0 Ricardo Horta ('11 )
2-0 Florian Grillitsch ('15 )
3-0 Gabri Martinez ('34 )
4-0 Ricardo Horta ('53 )

Einn leikur fór fram í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í dag. Braga í Portúgal tók á móti Ferencvaros en Robbie Keane stýrir ungverska liðinu.

Ferencvaros vann 2-0 sigur í fyrri leiknum og var því í góðri stöðu en Bragamenn fóru hinsvegar hamförum í seinni leiknum og náðu inn marki snemma.

Ricardo Horta skoraði af stuttu færi á elleftu mínútu og aðeins nokkrum mínútum seinna var staðan í einvíginu orðin jöfn þegar austurríski landsliðsmaðurinn Florian Grillitsch skoraði eftir mistök frá markverði gestaliðsins, David Grof.

Braga tók svo forystu í einvíginu um tíu mínútum fyrir hálfleik en þá skoraði Gabri Martinez eftir slakan varnarleik Ferenvcaros. 3-0 í hálfleik, 3-2 samtals.

Fyrirliðinn Horta skoraði svo annað mark sitt og fjórða mark Braga á 53. mínútu og innsiglaði farseðilinn í 8-liða úrslit.


Athugasemdir
banner