Stólpagrín hefur verið gert að Liam Rosenior, stjóra Chelsea, eftir að hann lét Alejandro Garnacho fara með skrifaðar leiðbeiningar inn á völlinn þegar nokkrar mínútur voru eftir af einvíginu við Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni.
Staðan var 8-2 fyrir PSG samtals og 84. mínúta þegar Garnacho var að búa sig undir að koma inn og fékk upplýsingar skrifaðar á blaði frá Rosenior.
Frank Leboeuf, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að þetta glósublað hafi verið algjörlega tilgangslaust og telur að Rosenior hafi verið að sýna sig eitthvað fyrir þeim sem voru að horfa.

„Ef ég hefði spilað leikinn hefði ég farið við hliðarlínuna og spurt hvort þetta væri eitthvað grín? Heldur þú að þetta gagnist eitthvað núna? Kannski var hann að skrifa brandara. Kannski var hann búinn að missa vitið, þetta er klikkun," segir Lebouf.
Þjálfaragoðsögnin Fabio Capello hefur einnig tjáð sig um þetta uppátæki Rosenior.
„Hann er búinn að tapa sér. Þetta fær leikmenn bara til að hlæja. Þið sjáið bara svipinn á Garnacho þegar hann fór inn á völlinn með glósublaðið. Hann var að hugsa: 'Hvað ertu að segja mér?'," segir Capello.
Rosenior og lærisveinar í Chelsea vonast til að svara til baka á laugardaginn þegar liðið mætir Everton.
Alejandro Garnacho didn’t look convinced the moment Liam Rosenior passed the tactical note. Even Tosin looked clueless after receiving it.
— SHAYEE ???? (@tier_1st) March 17, 2026
pic.twitter.com/xNHb0gjJko
Athugasemdir