Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Dóri Árna aðstoðar U19 í Portúgal - „Við Þórhallur erum góðir vinir"
Halldór Árnason.
Halldór Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórhallur Siggeirsson.
Þórhallur Siggeirsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: EPA
Halldór Árnason mun aðstoða Þórhall Sigurgeirsson, þjálfara U19 ára landsliðs karla, í komandi verkefni með liðinu. U19 landsliðið er á leið til Portúgals þar sem liðið mun spila gegn heimamönnum, Bandaríkjamönnum og Marokkó í lok mánaðar.

Halldór hefur verið án starfs frá því að hann var látinn fara frá Breiðabliki í október í fyrra eftir slæmt gengi liðsins. Árið á undan hafði hann gert Breiðablik að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari.

Hann var hjá Breiðabliki í tæp sex ár, var fyrst aðstoðarmaður Óskars Hrafns Þorvaldssonar og tók við aðalþjálfarstarfinu haustið 2024. Áður höfðu Halldór og Óskar unnið saman hjá Gróttu.

„Þetta kemur þannig til að það eru ansi mörg landslið að spila í sama glugga og á sama tíma. Það eru einhverjar hreyfingar á starfsteyminu á milli liða, þeir sem eru að þjálfa landsliðin taka oft að sér nokkur verkefni. Það endar þannig í þessu verkefni að Ómar Ingi (Guðmundsson), sem er aðstoðarþjálfari Þórhalls hjá U19, verður með U17 ára landsliðið á sama tíma."

„Þórhallur hafði samband við mig og spurði hvort ég væri til í að hoppa inn í þetta verkefni og aðstoða. Við Þórhallur erum góðir vinir og áttum frábært samstarf fyrir nokkrum árum þar sem við unnum náið saman. Það var engin spurning af minni hálfu að aðstoða í þessu verkefni í mars. Það er fínt að fá að sjá aðeins á bakvið tjöldin hvernig er að undirbúa landsliðsferðir, fá að vera hluti af því og vonandi get ég komið með eitthvað að borðinu,"
segir Halldór.

„Við unnum saman hjá Stjörnunni, Þórhallur var yfirþjálfari og ég stýrði afreksstarfi og þjálfaði 2. flokk."

Hvernig gerist þetta, hafði einhver hjá KSÍ samband?

„Þetta var eins óformlegt og þetta gat orðið, Þórhallur nefndi þetta innanhúss hvort hann mætti taka mig með af því það vantaði mann og svo heyrði hann í mér. Flóknara var það ekki."

Og Halldór var laus, klár í slaginn.

„Ég er laus, og hef verið að nota tímann nokkuð vel. Ég hef verið að fá öðruvísi sjónarhorn og vinkla á þjálfarastarfið og leiðtogahlutverkið. Ég hef verið að hitta áhugavert fólk, bæði þjálfara og íþróttamenn, úr fótbolta og öðrum íþróttagreinum, hér heima og erlendis. Maður reynir að víkka sjóndeildarhringinn þegar tækifæri gefst til, það er svo sannarlega ekki þegar maður er í starfi."

„Það að fara út með U19 er kannski partur af því, tækifæri til að vinna með þessum ungu leikmönnum og sjá á bakvið tjöldin hvernig er að vera í svona törn; þrír leikir á mjög stuttum tíma á móti virkilega sterkum andstæðingum. Ég hef auðvitað tekið þátt í mörgum Evrópuverkefnum sjálfur, en það eru stakir leikir. Þetta er öðruvísi og það er spennandi að fá að taka þátt í því."


Halldór aðstoðaði Þórhall með æfingar U19 liðsins fyrr í vetur. „Það var bara hluti af sama verkefni, þá var þessi staða komin upp - að þetta yrði svona. Það var ein æfingahelgi sem hópurinn náði að koma saman áður en farið væri út í þessa leiki."

Þú varst orðaður við starf hjá KSÍ í vetur, U21 þjálfarastarfið, átti eitthvað samtal sér stað?

„Nei, það var ekki. Og það var ekki heldur eitthvað sem ég var að leitast eftir á þeim tíma. Það kom svo fram síðan fljótlega hjá KSÍ að það yrði leyst innanbúðar sem var held ég skynsamleg lausn."

Hvernig lítur framtíðin út, langar þig að fara aftur að þjálfa sem fyrst, sem aðalþjálfari?

„Ég stefni klárlega á það að fara aftur að þjálfa. En ég átta mig á því að við búum á litlu landi, hér eru fá lið og nú erum við í mars og öll lið eru mjög vel mönnuð af þjálfurum. Ég er mjög rólegur og eins og ég sagði áðan hef ég nýtt tækifærið og reynt að verða betri þjálfari og betri leiðtogi án þess að vera þjálfari. Ég ætla halda því áfram þar til eitthvað spennandi kemur upp og þá mun ég klárlega skoða það mjög vel. En ég er mjög rólegur og er að njóta þess að geta svolítið sjálfur stjórnað tímanum."

Hafa einhverjar fyrirspurnir eða tilboð komið upp í vetur, eitthvað sem þú hefur skoðað?

„Það komu fyrirspurnir og samtöl og ósk um að fara í viðræður eða hittast strax dagana og vikuna eftir að ég var látinn fara frá Breiðabliki. Þá var ég búinn að ákveða það að ég myndi verja tímanum betur með því að hugleiða og gera upp tímann og árin hjá Breiðabliki og þar á undan. Ég sá tækifæri til þess að verða betri þjálfari með því að gera upp tímann og sanka að mér eins mikilli þekkingu og mögulegt væri þangað til ég tæki að mér næsta starf. Ég þurfti meira en viku eða tvær í það."

Á þessum tímapunkti hefur ekkert verið rætt um mögulegt framhald innan KSÍ, eða hvað?

„Nei, ekkert verið rætt, einungis þetta staka verkefni," segir Halldór að lokum.
Athugasemdir
banner
banner