Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 14:16
Elvar Geir Magnússon
„Bið fyrir því að meiðsli Chalobah séu ekki of alvarleg“
Mynd: EPA
Chelsea tapaði 0-3 fyrir Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær og einvíginu samtals 2-8.

Þetta var vont kvöld fyrir Chelsea, og ekki bara út frá úrslitunum. Varnarmaðurinn Trevoh Chalobah meiddist illa á ökkla og fór af velli á börum.

Hann lenti illa eftir baráttu við Achraf Hakimi og snerist svo illa upp á ökklann að atvikið var ekki endursýnt í sjónvarpi.

„Ég bið fyrir því að þetta sé ekki alvarlegt því við megum ekki við því að missa annan varnarmann," segir Liam Rosenior, stjóri Chelsea.

Chalobah setti inn færslu á Instagram með tilvísun í Biblíuna en beðið er eftir frekari fréttum af meiðslum hans.
Athugasemdir
banner
banner