,,Liðið er ánægt því að við þurftum sigur og náðum í þrjú stig í dag," sagði Insa Bohigues Fransisco leikmaður Víkings Ólafsvíkur eftir 5-0 sigur liðsins á ÍA í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 0 - 5 Víkingur Ó.
Insa náði að skora þriðja mark Ólafsvíkinga í leiknum en hann fagnaði með því að taka nokkur dansspor.
,,Ég fagnaði vel því að ég var mjög ánægður. Við vorum komnir þremur mörkum yfir í fyrri hálfleik og þá var ástæða til að fagna."
,,Dansinn var bara til gamans. Hann kom bara á þessu augnabliki, ég vildi fagna."
Ólafsvíkingar eru nú stigi á eftir Þórsurum þegar tvær umferðir eru eftir í Pepsi-deildinni. Á sunnudag mæta Ólafsvíkingar liði Fylkis í mikilvægum fallslag.
,,Við þurftum að vinna þennan leik og núna erum við í pakkanum. Við eigum góða möguleika á að halda sæti okkar í deildinni," sagði Insa.
Insa kann vel við sig á Íslandi þrátt fyrir kuldann en hann ætlar að skella sér í sumarfrí til Benidorm í október eins og kemur fram í viðtalinu hér að ofan.






















