Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Árni hefur gengið í gegnum erfiða tíma - „Akkúrat karakter sem þú þarft"
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Stefán Árni Geirsson var í byrjunarliði KR í 5-2 sigrinum á Þór í gær en hann meiddist illa rétt fyrir tímabilið í fyrra. Hann kom inn á sem varamaður í fyrstu umferð gegn Keflavík og skoraði.

„Stefán er búinn að ganga í gegnum erfiða tíma. Erfið og löng meiðsli í fyrra. Veturinn hefur ekki verið auðveldur fyrir hann. Hann kom gríðarlega sterkur inn á móti Keflavík," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, eftir leikinn í gær.

Óskar Hrafn hrósaði honum í hástert fyrir frammistöðu sína í leiknum.

„Hann er akkúrat karakter sem þú þarft þegar menn eru með hlekki, þú getur verið alveg hundrað prósent um það að hann sé ekki með neina hlekki, leikurinn kemur til hans. Hann er týpan sem við þurftum í þessum leik, þegar maður talar um að ekki beisla gleðina, orkuna og hugrekkið þá er hann maðurinn sem getur verið fremstur í flokki þar."
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Slapp
banner
banner