Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 18:06
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Titilbaráttunni nánast lokið eftir óvænt tap Napoli
Lazio-menn fagna gegn Napoli í dag
Lazio-menn fagna gegn Napoli í dag
Mynd: EPA
Ríkjandi meistarar Napoli eru svo gott sem úr titilbaráttunni eftir óvænt 2-0 tap gegn Lazio á heimavelli í Seríu A á Ítalíu í dag.

Napoli átti enn möguleika á að halda pressunni á Inter en átti samt sem áður fjarlægan möguleika á að vinna titilinn. Sá möguleiki er nánast alveg úti.

Matteo Cancellieri skoraði einfalt mark á 6. mínútu leiksins, eiginlega of einfalt. Kenneth Taylor tók hlaupið bakvið vörnina og inn á teiginn áður en hann lagði hann fyrir markið á Cancellieri sem gat ekki annað en skorað.

Lazio fékk tækifæri til að komast í 2-0 eftir rúman hálftíma er liðið fékk vítaspyrnu en Vanja Milinkovic-Savic varði frá Mattia Zaccagni og hélt Napoli inn í leiknum.

Þegar tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik kom annað mark frá Lazio eftir að Napoli tapaði boltanum við miðsvæðið. Gestirnir komu á leiftrandi hraða fram völlinn, boltinn fyrir markið og á Toma Basic sem skaut föstu skoti í nærhornið.

Lazio ekki verið frábært á útivelli á þessu tímabili en náði þarna í mikilvægan sigur. Liðið er í 9. sæti með 47 stig, en Napoli áfram í öðru með 66 stig, tólf stigum frá Inter sem er á toppnum þegar fimm umferðir eru eftir.

Parma náði þá í góðan 1-0 útisigur á Udinese. Nesta Elphege gerði eina mark leiksins á 51. mínútu. Udinese er í 11. sæti með 43 stig en Parma í 13. sæti með 39 stig.

Udinese 0 - 1 Parma
0-1 Nesta Elphege ('51 )

Napoli 0 - 2 Lazio
0-1 Matteo Cancellieri ('6 )
0-1 Mattia Zaccagni ('31 , Misnotað víti)
0-2 Toma Basic ('57 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
3 Milan 32 18 9 5 47 27 +20 63
4 Juventus 32 17 9 6 55 29 +26 60
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 3 12 45 29 +16 57
7 Atalanta 33 15 11 7 45 28 +17 56
8 Bologna 32 14 6 12 42 37 +5 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
13 Torino 32 11 6 15 37 54 -17 39
14 Genoa 32 9 9 14 38 45 -7 36
15 Fiorentina 32 8 11 13 37 44 -7 35
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 32 6 9 17 26 47 -21 27
18 Lecce 32 7 6 19 21 45 -24 27
19 Verona 32 3 9 20 23 55 -32 18
20 Pisa 32 2 12 18 23 58 -35 18
Slapp
banner
banner
banner