Aldís Kara Lúðvíksdóttir tók á dögunum fram skóna á ný eftir að hafa verið frá fótbolta síðustu fjögur ár og hélt upp á það með því að skora fernu í 8-0 stórsigri Hauka á Smára í 1. umferð Mjólkurbikarsins í dag.
Framherjinn spilaði síðast deildarleik með ÍH árið 2022 en ákvað í kjölfarið að leggja skóna á hilluna. Hún raðaði inn mörkum á sínum yngri árum með FH og Breiðabliki ásamt því að skora 19 mörk í 28 landsleikjum með yngri landsliðunum.
Haukar tilkynntu á þriðjudag að Aldís væri búin að skrifa undir samning hjá félaginu eftir að hafa spilað fimm leiki á undirbúningstímabilin og er hún strax farin að hafa áhrif.
Aldís setti þrennu í fyrri hálfleik gegn Smára og náði síðan fernunni rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok. Halla Þórdís Svansdóttir setti tvö og þá gerðu þær Ísold Hallfríðar Þórisdóttir og Karólína Dröfn Jónsdóttir eitt mark hvor.
Keflavík vann dramatískan 2-1 sigur á KR eftir framlengdan leik í Nettóhöllinni.
Ariela Lewis kom Keflavík yfir á 30. mínútu en KR-ingar svöruðu er Ragnheiður Ríkharðsdóttir setti boltann í netið hálftíma fyrir lok venjulegs leiktíma.
Ekki náðist að finna sigurvegara eftir 90 mínútur og því framlengt en þar var mikil dramatík. Vedran Medenjak, þjálfari Keflavíkur, sá rautt á 105. mínútu og undir lokin fékk Salóme Kristín Róbertsdóttir, leikmaður liðsins, sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Það hafði engin áhrif á Keflavík sem setti sigurmarkið undir lok framlengingarinnar. Hilda Rún Hafsteinsdóttir, fædd 2009, var hetja liðsins og fleytti þeim áfram í næstu umferð.
Úrslit og markaskorarar:
Haukar 8 - 0 Smári
1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('4 )
2-0 Ísold Hallfríðar Þórisdóttir ('7 )
3-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('14 )
4-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('32 )
5-0 Karólína Dröfn Jónsdóttir ('34 )
6-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('35 )
7-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('54 )
8-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir ('67 )
Keflavík 2 - 1 KR
1-0 Ariela Lewis ('30 )
1-1 Ragnheiður Ríkharðsdóttir ('60 )
2-1 Hilda Rún Hafsteinsdóttir ('120 )
Rautt spjald: Salóme Kristín Róbertsdóttir ('119, Keflavík), Vedran Medenjak ('105, Keflavík)



