Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. október 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Réttað yfir Benzema á morgun vegna fjárkúgunar
Mynd: Getty Images
Það verður réttað yfir Karim Benzema framherja Real Madrid á morgun.

Franski framherjinn átti að hafa kúgað Mathieu Valbuena, liðsfélaga hans í franska landsliðshópnum, vegna kynlífsmyndbands. Vinir Benzema höfðu hótað því að leka myndbandinu ef Valbuena myndi ekki greiða þeim rausnarlega.

Hann var rekinn úr landsliðinu eftir að þetta mál kom upp en var valinn í hópinn í fyrsta sinn í sex ár fyrir EM í sumar.

Hann er mættur til Úkraínu með Real Madrid en liðið mætir Shakhtar í kvöld. Hann mun síðan fljúga til Frakklands þar sem réttarhöldin fara fram á morgun.
Athugasemdir
banner
banner