Ein stærsta spurningin í enska boltanum þessa dagana er hver verður stjóri Manchester United þegar næsta tímabil gengur í gerð.
Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í gær setti Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson saman fimm manna lista yfir mögulega stjóra fyrir United.
Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í gær setti Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson saman fimm manna lista yfir mögulega stjóra fyrir United.
Á þeim lista voru:
- Michael Carrick
- Luis Enrique
- Julian Nagelsmann
- Cesc Fabregas
- Kieran McKenna
Michael Carrick hefur stýrt Man Utd til bráðabirgða að undanförnu og staðið sig býsna vel. Rætt var um það í þættinum hvort að hann væri góður kostur í starfið.
„Af hverju ekki?" sagði Einar Guðnason, stuðningsmaður Arsenal. „Er það bara af því þetta með Solskjær gekk ekki upp?"
„Ég myndi horfa á Carrick," sagði Magnús Haukur Harðarson og bætti Guðmundur þá við að Luis Enrique væri draumur.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna hér fyrir neðan.
Athugasemdir




