Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
banner
   þri 17. febrúar 2026 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Wrexham mistókst að komast í umspilssæti
Wrexham fagnar marki.
Wrexham fagnar marki.
Mynd: EPA
Það voru tveir leikir í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands, í kvöld.

Wrexham, sem er í eign Hollywood-leikarana Ryan Reynolds og Rob McElhenney, mistókst að komast upp í umspilssæti þar sem liðið gerði jafntefli gegn Bristol City á útivelli.

Wrexham komst tvisvar yfir í leiknum en tvisvar jafnaði Bristol en seinna jöfnunarmarkið kom á 89. mínútu. Derby er sem stendur í sjötta sætinu, sem er síðasta umspilssætið, en Wrexham er með jafnmörg stig í sjöunda sæti. Bristol kemur svo með stigi minna í níunda sæti.

Í hinum leik kvöldsins gerði Portsmouth góða ferð til London og vann 1-3 útisigur gegn Charlton. Portsmouth er núna fjórum stigum frá fallsvæðinu en Leicester er í fallsæti.

Bristol City 2 - 2 Wrexham
0-1 Ollie Rathbone ('34 )
1-1 Sinclair Armstrong ('47 )
1-2 Joe Williams ('76 , sjálfsmark)
2-2 Max Bird ('89 )

Charlton Athletic 1 - 3 Portsmouth
0-1 Terry Devlin ('22 )
0-2 Colby Bishop ('35 , víti)
0-3 Terry Devlin ('56 )
1-3 Jayden Fevrier ('64 )
Athugasemdir
banner