Stjarnan 4 - 0 Ægir
1-0 Emil Atlason ('17)
2-0 Alex Þór Hauksson ('37)
3-0 Andri Rúnar Bjarnason ('81)
4-0 Samúel Kári Friðjónsson ('86)
Rautt spjald: Ibrahim Turay, Stjarnan ('45)
1-0 Emil Atlason ('17)
2-0 Alex Þór Hauksson ('37)
3-0 Andri Rúnar Bjarnason ('81)
4-0 Samúel Kári Friðjónsson ('86)
Rautt spjald: Ibrahim Turay, Stjarnan ('45)
Stjarnan fór með sigur af hólmi gegn Ægi í Lengjubikarnum í kvöld. Leikið var í Miðgarði í Garðabæ.
Emil Atlason kom Stjörnunni á bragðið eftir 17 mínútna leik og Alex Þór Hauksson bætti við marki 20 mínútum síðar.
Rétt áður en flautað var til hálfleiks flæktust málin aðeins fyrir Stjörnuna því Ibrahim Turay, sem hefur heillað á undirbúningstímabilinu, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt.
Stjarnan gekk þó frá leiknum í seinni hálfleik og bætti við tveimur mörkum undir lokin, Andri Rúnar Bjarnason og Samúel Kári Friðjónsson voru þar að verki.
Stjarnan hefur unnið báða leiki sína til þessa á meðan Ægir hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum.
Athugasemdir

