Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 20. júní 2025 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var hetjan í Hollywood ævintýri Wrexham en má núna fara
Veggur í Wrexham merktur Paul Mullin.
Veggur í Wrexham merktur Paul Mullin.
Mynd: EPA
Ryan Reynolds, eigandi Wrexham.
Ryan Reynolds, eigandi Wrexham.
Mynd: EPA
Þau sem hafa horft á heimildarþættina um Wrexham á Disney Plús vita allt um sóknarmanninn Paul Mullin.

Hann kom til félagsins í utandeildinni og raðaði inn mörkunum. Hann hjálpaði Wrexham að komast upp úr þeirri deild og í D-deildina á Englandi þar sem hann hélt áfram að skora fullt af mörkum.

Hann varð hetja hjá félaginu og stuðningsmenn sungu sífellt um hann. Í þáttunum kom hann einnig mikið fyrir og var í aðalhlutverki. En eftir að Wrexham komst upp í C-deild, þá gekk lítið hjá honum.

Mullin meiddist illa og þegar hann var inn á vellinum, þá skoraði hann ekki; Mullin gerði bara þrjú mörk í 26 leikjum þegar Wrexham komst upp í Championship-deildina á liðnu tímabili.

Í nýjustu þáttunum er fjallað um það hvernig Mullin og Ollie Palmer, sóknarmenn sem hjálpuðu Wrexham að komast á þann stað sem félagið er á í dag, eru dottnir út úr myndinni. Samkvæmt Daily Mail er Mullin núna í viðræðum við Wigan um að fara þangað á láni.

Wrexham gekk nýverið frá kaupum á sóknarmanninum Ryan Hardie frá Plymouth og því er enn minna pláss fyrir Mullin núna.

Hollywood leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eru eigendur Wrexham en þeir eru núna komnir ansi nálægt draumnum sínum: Að koma Wrexham upp í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner